Fara í efni

Habbý Ósk í Hofi

Fracture. Ljósmyndasería.
Fracture. Ljósmyndasería.

Myndlistarkonan Habbý Ósk opnar sýningu sína í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 15. desember.

Habbý er fædd og uppalin á Akureyri en býr og starfar sem myndlistarkona í New York þar sem hún gerir það gott. Í listinni vinnur hún með ýmsa miðla og blandar þeim gjarnan saman í verkum sínum, til að mynda með samspili skúlptúra og ljósmynda af þeim. Hún vinnur með þemu líkt og varanleika, jafnvægi, tíma, þyngdarafl, hreyfingu og andhverfur þeirra. Habbý útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá School of Visual Arts í New York 2009 og bachelorgráðu í myndlist frá AKI ArtEz Institute of the Arts í Enschede í Hollandi 2006. Hún hefur haldið einkasýningar á Íslandi og í Bandaríkjunum, tekið þátt í samsýningum víðsvegar um heiminn og gestavinnustofum. 

Opnun sýningar Habbýar hefst klukkan 16 og eru allir velkomnir en sýningin stendur til 10. febrúar 2019. Léttar veitingar í boði.

Sýningin er önnur myndlistarsýningin af fjórum sem settar verða upp í Hofi á starfsárinu. Nýlega lauk sýningu Brynhildar Kristinsdóttur en í febrúar setur Þrándur Þórarinsson upp sýningu og í vor verður það myndlistamaðurinn Jón Laxdal sem sýnir verk sín í Hofi.

Til baka