Fara í efni

Gusgus mætir aftur í Hof 2024! Miðasala er hafin!

Þá verður tímamótaverkið Arabian Horse flutt í heild sinni ásamt öðrum helstu tónverkum sveitarinnar.

Arabian Horse er partíplata með djúpa sál og minningin lifir af tónleikum sem og af dansgólfi. Í október 2024 fáum við loks aftur að upplifa plötuna flutta á sviði. Þar fáum við að njóta plötunnar í heild sinni, leyfa taktinum að taka okkur og upplifa litbrigði tilfinninga sem streyma í gegnum þetta meistaraverk.

GusGus er þekkt fyrir að leggja allt í sölurnar í enda fáar hljómsveitir sem eru jafn þéttar á tónleikum. Tryggið ykkur miða í tíma, því flest allir tónleikar sveitarinnar til þessa hafa selst upp vel fyrir tónleikadag. Miðasala er hafin á mak.is!

Til baka