Fara í efni

Greta Salóme með ann­an fót­inn á Ak­ur­eyri í vet­ur

Greta Salóme er glæsilegur liðsstyrkur við Menningarfélag Akureyrar.
Greta Salóme er glæsilegur liðsstyrkur við Menningarfélag Akureyrar.

Tónlistarkonan, Eurovisionfarinn og Disneystjarnan Greta Salóme hefur hafið störf í Menningarhúsinu Hofi. Greta Salóme, sem hefur lengi verið konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, starfar náið með Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar og tónskáldinu Atla Örvarssyni að framgangi kvikmyndatónlistarverkefnisins SinfoniaNord og kennir í Tónlistarskóla Akureyrar sem einnig hefur aðsetur í Hofi.

„Ég er ótrúlega spennt fyrir öllum þessu geggjuðu verkefnum sem eru í gangi í tónlistinni á Akureyri. Við höfum til að mynda verið í fjölda upptaka fyrir Netflix og fleiri erlend stórfyrirtæki sem vantar tónlista fyrir kvikmyndir og sjónvarpsseríur,“

segir Greta Salóme sem er búsett í Mosfellsbæ þótt hún sé með annan fótinn á Akureyri. „Eftir að hafa túrað endalaust síðustu árin, og þá sérstaklega erlendis, hef ég séð stóra samninga hverfa úr höndunum á mér eftir að covid skall á. Nú ætti ég að vera að túra á milli landa með sýninguna mína fyrir Disney en þess í stað túra ég milli landshluta og er bara að elska það. Það er svo ótrúlegur uppgangur í sinfóníska tónlistarstarfinu á Akureyri og ég er svo spennt og stolt að fá að taka þátt.“

 

Til baka