Fara í efni

Garún / Bistro Bar opnar í Hofi í apríl

Samningar hafa tekist með nýjum rekstraraðila veitinga í Menningarhúsinu Hofi. Matreiðslumaðurinn Sölvi Antonsson, sem rekur Ghost Kitchen ehf, Ghost Mountain og Baccalár Bar, mun reka veitingastaðinn Garún / Bistro Bar í Hofi og mun auk þess sjá um veitingar á viðburðum og fundum í húsinu.

„Við ætlum að fara í þjóðlegu áttina með mat, drykk, kökur og kaffi og bjóða upp á smurbrauðstertur og jafnvel heita brauðrétti. Á hádegishlaðborðinu verður einfaldur og bragðgóður matur á sanngjörnu verði á boðstólunum,“ segir Sölvi.

Stefnt er að því að Garún / Bistró Bar opni í byrjun apríl.

Til baka