Fyrsti viðburður nýrrar Óperu verður í Hofi
Nýstofnuð ópera mun hefja starfsemi utan höfuðborgarsvæðsins - nánar tiltekið í Hofi á Akureyri þar sem boðið verður upp á veglegan opnunarviðburð í haust. Í framhaldinu verður viðburðurinn fluttur víðar um land, m.a. á Egilsstöðum og að endingu í Reykjavík.
Opnunarviðburðurinn mun samanstanda af skemmtilegri dagskrá þar sem Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, einsöngvarar, kórar og leikarar munu leiða áheyrendur meðfram helstu vörðum óperusögunnar og tengja við mikilvæg tímamót í íslenskri menningar- og hugmyndasögu.
Á tónleikunum munu m.a. koma fram söngvarar óperunnar ásamt leikurum Þjóðleikhússins en Óperan er sem kunnugt er hluti af Þjóðleikhúsinu. Ólafur Egilsson mun leikstýra dagskránni í Hofi sem verður vegleg og skemmtileg en miðasala verður auglýst síðar.
Að sögn Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar, er það einstakt gleðiefni að þessi viðburður verði í Hofi á Akureyri og gefi skýrt til kynna að óperan ætli sér að standa undir nafni. Sýningin er framleidd í samstarfi við Menningarfélagið sem rekur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Leikfélag Akureyrar og Menningarhúsið Hof, en öll svið félagsins taka þátt í sköpun og framkvæmd þessarar opnunarsýningar Óperunnar á Íslandi.
Finnur Bjarnason, óperustjóri, segir verkefnið afar spennandi og leggur áherslu á að mikilvægt sé að landsmenn um allt land fái tækifæri til að bæði kynnast og taka þátt í starfsemi óperunnar frá upphafi.