Fara í efni

Fyrsti samlestur á Benedikti búálfi

Neðsta röð: Björgvin Franz Gíslason og Vala Guðnadóttir.
Röð tvö: Árni Beinteinn, Þórdís Björk Þorf…
Neðsta röð: Björgvin Franz Gíslason og Vala Guðnadóttir.
Röð tvö: Árni Beinteinn, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson og Birna Pétursdóttir.
Röð þrjú: Karl Ágúst Úlfsson og leikstjórinn Vala Fannell.
Röð fjögur: Króli og Auður Ösp.
Fimmta röð: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Efsta röð: Þórunn Geirsdóttir

Það var glatt á hjalla á fyrsta samlestri á fjölskyldusöngleiknum um Benedikt búálf en leikhópurinn, ásamt listrænum stjórnendum, hittist í fyrsta skiptið í Samkomuhúsinu á mánudaginn. Leikfélag Akureyrar, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, setur á svið hinn ævintýralega og vinsæla fjölskyldusöngleik Benedikt búálf eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson í mars. Söngleikurinn, sem var frumsýndur árið 2002, er einn allra þekktasti barnasöngleikur þjóðarinnar og hefur töfrandi saga og grípandi tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar unnið hug og hjörtu íslenskra barna á öllum aldri.

Benedikt búálfur er byggður á samnefndum bókum eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson og fjallar um vinina Benedikt búálf og Dídí mannabarn og ferðalag þeirra um Álfheima. Tóta tannálfi hefur verið rænt og allur Álfheimur er í hættu. Vinirnir leggja af stað og á leiðinni lenda þau í ýmsum ævintýrum og ásamt dreka, blómálfum og alls konar furðuverum hjálpast þau að við að bjarga Álfheimum.

Með hlutverk Benedikts fer Árni Beinteinn Árnason en aðrir leikarar eru Björgvin Franz Gíslason, Valgerður Guðnadóttir, Króli, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson og Birna Pétursdóttir.  Miðasala er í fullum gangi!

Til baka