Fara í efni

Fyrsti bæjarstjórnarfundurinn í Hofi

Fyrsti bæjarstjórnarfundurinn sem verður haldinn í Hofi verður jafnframt síðasti fundur núverandi bæjarstjórnar, en fundir bæjarstjórnar verða í Hofi út þetta ár og það næsta, hið minnsta. Fundurinn, sem er öllum opinn, er í dag og hefst kl. 16:00.

Fundurinn verður einnig tekinn upp og honum sjónvarpað á morgun, miðvikudag, kl. 14:00 á sjónvarpsstöðinni N4.

Menningarfélag Akureyrar býður bæjarstjórnina velkomna í Menningarhúsið Hof.

Til baka