Fara í efni

Fyrri sýningu LMA sunnudaginn 15. mars flýtt

Fyrri sýningu Leikfélags Menntaskólans á Akureyri hefur verið flýtt um klukkustund. Söngleikurinn Ljóska í gegn verður því sýndur kl. 15  og kl. 20 sunnudaginn 15. mars. Allir miðaeigendur á sýninguna sem átti að vera kl. 16 ættu nú að vera búnir að fá tölvupóst þess efnis frá Menningarfélaginu. Ef ekki þá biðjum við ykkur um að hafa samband við miðasöluna með því að senda tölvupóst á midasala@mak.is.  Þeim miðaeigendum sem ekki hafa möguleikann á þvi að mæta kl 15 er velkomið að færa miðana sína á aðra sýningu. Næstu sýningadagar eru föstudagurinn 20. mars og sunnudagurinn 22. mars. 

Til baka