Fara í efni

Bók og miði á Litla skrímslið og stóra skrímslið - Fullkomin jólagjöf fyrir börnin!

Leikfélag Akureyrar frumsýnir Litla skrímslið og stóra skrímslið í Hofi í janúar en leikritið er byggt á bókunum vinsælu eftir Áslaugu Jónsdóttur.

Miði á verkið ásamt bók kostar aðeins 5000 krónur og er því tilvalin jólagjöf fyrir afa og ömmu, frænku og frænda. 

Leikritið Litla skrímslið og stóra skrímslið er falleg og einlæg saga um vináttu og samskipti. Verkið er sérstaklega ætlað yngri börnum þó fullyrða megi að öll fjölskyldan muni hafa gaman að uppátækjum og hjartnæmu sambandi skrímslanna.

Settu saman hina fullkomnu gjöf hér.

Til baka