Fara í efni

Frumsýning Hamingjudaga í Borgarleikhúsinu á laugardaginn

Edda Björg leikur Vinní sem er ákveðin í því að lífið sé hamingjuríkt og fallegt þrátt fyrir að útli…
Edda Björg leikur Vinní sem er ákveðin í því að lífið sé hamingjuríkt og fallegt þrátt fyrir að útlitið sé allt annað en bjart.

Verkið hamingjudagar eftir Nóbelshöfundinn Samuel Beckett verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu laugardagskvöldið 5. nóvember. Sýningin er gestasýning Leikfélags Akureyrar. 

Verkið Hamingjudagar fjallar um takmarkalausan lífsvilja manneskjunnar og ódauðleika bjartsýninnar. Það þykir eitt skemmtilegasta leikrit Becketts sem lætur hér gamminn geisa með hrífandi húmor, visku og ólíkindi.

„Ó, þetta er hamingjudagur, þetta verður enn einn hamingjudagur!“ segir Vinní, frægasta kvenpersóna Samuels Becketts. Hún er ákveðin í því að lífið sé hamingjuríkt og fallegt, þrátt fyrir að útlitið sé allt annað en bjart. 

Með hlutverk Vinní fer Edda Björg Eyjólfsdóttir en eiginmann hennar leikur Árni Pétur Guðjónsson. Leikstjóri er Harpa Arnardóttir. 

Miðasala er í fullum gangi á tix.is. 

Til baka