Frumflutningur sjö glænýrra laga eftir 10-12 ára ungmenni 19. apríl í Hamraborg
Uppskeruhátíð Upptaktsins, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna á Norðurlandi eystra, verður haldin sunnudaginn 19. apríl kl. 17. Þar verða sjö ný lög eftir jafnmörg ungmenni á aldrinum 10-12 ára frumflutt af atvinnuhljóðfæraleikum á sviði Hamraborgar.
Það voru sjö ungmenni, öll frá Akureyri, sem komust áfram að þessu sinni í Upptaktinn. Þau sendu inn hugmynd að lagi sem þau hafa unnið í vinnusmiðjum með Gretu Salóme, tónlistarstjóra Upptaktsins og fiðluleikara. Afrakstur vinnu þeirra má sjá og heyra á tónleikunum, sem eru hluti af Barnamanningarhátíðinni á Akureyri.
Ungtónskáldin sjö eru:
Freyja Rán Kristínardóttir - Snjóstormur
10 ára úr Glerárskóla
Guðný Lilja B. Ásgeirsdóttir – Draumar
10 ára úr Lundarskóla
Hákon Geir Snorrason – Saman
12 ára úr Lundarskóla.
Ólöf Birna Kristjánsdóttir
11 ára úr Síðuskóla
Ólöf Braga Ívarsdóttir – Tímavélin
10 ára úr Giljaskóla
Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske
12 ára úr Brekkuskóla
Þorvaldur Adam Ásgeirsson – Blíða
10 ára úr Lundarskóla
Hljómsveit Upptaktsins skipar tónlistarfólkið:
Emil Þorri Emilsson – slagverk
Eydís S. Úlfarsdóttir - víóla
Eyþór Ingi Jónsson – flygill
Greta Salóme – fiðla og söngur
Kristján Edelstein – gítar
Stefán Ingólfsson - bassi
Ágúst Þór Brynjarsson - söngur
Útsetning verkanna fyrir hljómsveit: Greta Salóme Stefánsdóttir
Tónlistarstjóri: Greta Salóme Stefánsdóttir
Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE
Frítt er inn á tónleikana og öll eru hjartanlega velkomin!