Fara í efni

Framlengjum forsölutilboð um viku

Forsölutilboð á afmælistónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Óðurinn til gleðinnar – 9. sinfónía Beethovens, hefur verið framlengt um eina viku. Tónleikarnir fara fram í Menningarhúsinu Hofi 29. október. Ef þú tryggir þér miða strax færðu miðann á 7565 krónur en fullt verð er 8900 krónur. 

Hljómveitarstjóri er Bjarni Frímann Bjarnason en einsöngvarar eru stórstjörnurnar Herdís Anna Jónasdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Gunnar Björn Jónsson og Oddur Arnþór Jónsson. 

Kór Akureyrarkirkju og Mótettukórinn koma fram ásamt Sinfóníuhljómveit Norðurlands. 

Til baka