Frábær febrúar hjá okkur í Menningarfélagi Akureyrar
10.02.2026
Það er nóg um að vera í febrúar hjá okkur í Menningarfélaginu!
HAMPARAT || Föstudaginn 20. febrúar kl 20:00 í Hofi
HAMPARAT hefur nú ákveðið að gleðja landsmenn með því að glæða aftur eldinn,
og mun tónleikaveislan þeirra að þessu sinni hefjast á Akureyri þar sem heimamönnum mun gefast tækifæri til að sjá Hof fyllast eldglæringum úr neðra.
BIRTÍNGUR || Frumsýning 26. febrúar í Samkomuhúsinu
Bráðskemmtileg, filterslaus rokkóperetta um hörmungar og dauða sem enginn má missa af. 12 ný lög eftir Þorvald Bjarna og hljómsveit frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á sviðinu. Aðeins sýnd í febrúar og mars!
ÉG SKAL SYNGJA FYRIR ÞIG || 28. febrúar kl 21:00 í Hofi
Einar Ágúst syngur ljóð Jónasar Friðriks við undirleik Gosanna frá Vestmannaeyjum.
UPPTAKTURINN 2026
Svo má ekki gleyma að umsóknarfrestur í Upptaktinn okkar frábæra rennur út 19. febrúar á miðnætti og erum við svo spennt að sjá hugmyndirnar sem munu koma frá hæfileikaríku krökkunum á Norðurlandi eystra.
MAJÓ
Veitingarstaðurinn Majó er svo á fullu í framkvæmdum og hlakkar til að taka á móti fólki á vormánuðum! Hægt er að fylgjast með þeim hér https://www.facebook.com/majo.iceland
Hlökkum til að sjá ykkur!