Fara í efni

Fossaganga í Hofi

Hér, þar og allsstaðar  er yfirskrift fjölda einkasýninga á Akureyri í sumar í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins. Nokkur verk eru staðsett víðs vegar um Hof. Á meðal sýnenda er Unnur Óttarsdóttir en hún á olíumálverk af fossum með grófri áferð og íslensku hrauni sem er staðsett á 2. hæð.

Framin var gjörningur í formi Gangandi myndlistarsýningar þar sem verkin voru færð út fyrir sýningarrýmið þegar gengið var með þau um götur og torg Akureyrar. Fossagangan hefur m.a. þá hugmynd að leiðarljósi að myndlistin nálgist og mæti almenningi í listasölum og á götum úti.

Gömlu meistararnir máluðu úti í náttúrunni. Bilið á milli mans og náttúru hefur breikkað. Verkin sem sýnd verða í Fossagöngunni hafa verið sýnd úti í náttúrunni og hefur Fossagangan þá hugmynd að leiðarljósi að maður, myndlist og náttúra mætist.

Vatnið, mansandinn og tjáning manna á meðal fossar áfram, stíflast eða höktir. Virkjun fossa á Íslandi hefur verið mótmælt síðastliðin ár. Í stað mótmælagöngu er sýningin Fossaganga meðmælaganga og óður til fossa og náttúrunnar almennt þar sem gengið var í fossafylkingu um Akureyri.

Menningarhúsið Hof hvetur alla áhugasama að skoða sýninguna.

Til baka