Fara í efni

Forsölutilboð Chicago rennur út um helgina

Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á heimsfræga söngleikinn Chicago á forsölutilboði. Ef þú kaupir miða á sýninguna fyrir 15. október færðu miðann á 7120 krónur. Fullt verð er 8900 kr.

Þú færð falleg gjafabréf á sýninguna í miðasöluna í Hofi en miðar á Chicago eru fyrsta flokks jólagjöf.

Söngleikurinn er frumsýndur í Samkomuhúsinu í janúar 2023. Með aðalhlutverkin fara Jóhanna Guðrún og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Aðrir leikarar eru Margrét Eir, Björgvin Franz Gíslason, Arnþór Þórsteinsson og Bjartmar Þórðarson.

Söngleikurinn Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verðlauna. Chicago var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi. 

Tryggðu þér miða á forsölutilboðinu strax í dag á mak.is. 

Til baka