Fara í efni

Forsölutilboð á Skugga Svein

Skugga Sveinn Leikfélags Akureyrar er kominn í sölu! Frumsýning er í janúar 2022. 

Forsölutilboð til 11. nóvember!

Skugga Sveinn, hér í nýrri og ferskri útgáfu, er bráðskemmtilegt verk um einn þekktasta útlaga Íslands og baráttu hans við laganna verði.

Lárensíus sýslumaður á þann draum heitastan að klófesta útilegumanninn Skugga Svein og lið hans enda Skugga Sveinn stórglæpamaður, þjófur og morðingi. En heldur vandast málið þegar dóttir Lárensíusar verður ástfangin af einum útilegumannanna og gerir hvað hún getur til að frelsa hann frá fangelsun og dauða. Hefst þá spennandi atburðarrás og barátta á milli ástar og haturs, réttlætis og ranglætis.

Skugga Sveinn eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson var eitt þekktasta og vinsælasta leikverk á Íslandi um áratuga skeið og litríkar persónur þess, Grasa Gudda, Gvendur smali og Ketill skrækur hafa lifað með þjóðinni og tekið sér bólfestu í hjarta hennar.

Leikstjóri: Marta Nordal
Leikgerð: Marta Nordal og leikhópurinn
Leikmynd: Kristján Garðarsson
Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir
Tónsmíði og tónlistarútsetningar: Sævar Helgi Jóhannsson
Söngtextar: Vilhjálmur B Bragason
Ljósahönnuður: Ólafur Ágúst Stefánsson
Sýningarstjóri: Þórunn Geirsdóttir
Hljóðmaður: Gunnar Sigurbjörnsson
Leikarar: Jón Gnarr, Björgvin Franz Gíslason, Sunna Borg, María Pálsdóttir, Árni Beinteinn Árnason, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Vilhjálmur B Bragason
Sviðsstjóri: Jasmína Woyjtola
Aðstoð við smíði leikmyndar: Einar Rúnarsson

 Tryggðu þér miða á  forsölutilboði sem er 25% afsláttur. Afslátturinn gildir til 11. nóvember sem er einmitt fæðingardagur Matthíasar Jochumssonar. 

Til baka