Fara í efni

Forsölutilboð á Hamingjudaga

Verkið Hamingjudagar verður frumsýnt í Black Box í Menningarhúsinu Hofi þann 2. september. Ef þú kaupir miða á verkið fyrir 20. ágúst færðu 20% forsöluafslátt og miðann á aðeins 4720 krónur. 

Hamingjudagar eða Happy Days er eftir heimsfræga, írska nóbelsverðlaunaleikskáldið Samuel Beckett og fjallar um Vinní, frægustu kvenpersónu Becketts. Vinní er ákveðin í því að finnast lífið hamingjuríkt og fallegt, þrátt fyrir að útlitið sé allt annað en bjart. Verkið fjallar um takmarkalausan lífsvilja manneskjunnar og ódauðleika bjartsýninnar og er áreiðanlega lang skemmtilegasta leikrit nóbelshöfundarins sem lætur gamminn geisa með hrífandi húmor, visku og ólíkindi.

Engin önnur en Grímuverðlaunaleikkonan Edda Björg Eyjólfsdóttir leikur Vinní. Tryggðu þér miða strax á þetta spennandi verk á þessu frábæra verði. Athugið; aðeins tvær sýningarhelgar á Akureyri áður en sýningar halda áfram í Borgarleikhúsinu. 

Til baka