Fara í efni

Forsöluafsláttur á Pláneturnar eftir Gustaf Holst

Tónleikarnir Pláneturnar eftir Gustaf Holst eru komnir í sölu á mak.is. Forsöluafsláttur gildir til 1. september!

Pláneturnar eru eitt vinsælasta tónverk 20. aldar og verður flutt í heild sinni með sögumanni og myndasýningu í Hofi þann 18. febrúar 2024!

Stjörnu - stjörnufræðingurinn Sævar Helgi Bragason leiðir áheyrendur í gegnum sögu plánetana og tilkomumiklu myndefni verður varpað upp meðan á tónlistarflutningnum stendur.

Hljómsveitarstjóri verður Daníel Bjarnason. 

Gustaf Holst var mikill áhugamaður um stjörnufræði og í þessu tónverki líkir hann eftir einkennum plánetanna eins og hann upplifði þær. Tilkomumikill hjómur þessa verka hefur haft mikil áhrif á kvikmyndatónlist og hafa tónskáld eins og John Williams og Howard Huges greinilega verið undir áhrifum frá Holst og Plánetunum hans í þeirra verkum, t.d í Star Wars og Lord of the Rings.

Á tónleikunum leiðir Stjörnu-Sævar áheyrandann um himinhvolfið undir flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á þessu einu vinsælastasta og glæsilegasta hljómsveitarverki 20. aldar. Nýju og mögnuðu myndefni úr himingeiminum verður varpað upp meðan á tónlistarflutningnum stendur.

Til baka