Fara í efni

Forréttur fyrir Líf í boði sviðslistadeildar MA

Sviðslistadeild Menntaskólans á Akureyri sýnir stutt verk fyrir sýninguna Líf sem sýnd er í Samkomuhúsinu annað kvöld.
 
DÓTTIR, SONUR, LÆKNAR fjallar um tvö systkyni og upplifun þeirra af erfiðari æsku. Í verkinu líkir höfundur því saman að búa á heimili þar sem alkahólismi og andleg vanlíðan eru til staðar við það að búa á sjúkrahúsi. Verkið er átakanlegt og veltir upp spurningunni um það hvernig áhrif erfið æska hafi á þá sem upplifðu hana. Sýningin er eftir Sóley Evu Magnúsdóttur.
 
Líf fjallar um Sissu Líf en Margrét Sverrisdóttir hlaut Rvk Fringe fyrir karaktersköpun sína. 
 
Miðasala á LÍF er á MAK.IS.
 
Athugið, aðeins þessi eina sýning og ekki er verra að fá smá forrétt í boði sviðslistadeildar MA. 

 

Til baka