Fara í efni

Fjölsóttasta innlenda ráðstefnan í orku- og veitumálum sett í Hofi í dag

Samorkuþing var sett í morgun, fimmtudag, í Hofi. Þingið er haldið á þriggja ára fresti á Akureyri og er fjölsóttasta innlenda ráðstefnan í orku- og veitumálum. Aðsóknin á þingið hefur aldrei verið meiri en í ár. Óhætt er að segja að Hof, sem og öll Akureyri verði undirlögð af starfsfólki orku- og veitufyrirtækja um allt land, en 620 manns eru skráð til leiks á þingið. Frá þessu segir í tilkynningu frá Samorku.

Á dagskrá eru 140 fyrirlestrar um hin fjölmörgu viðfangsefni orku- og veitugeirans, en framundan eru gríðarlegar breytingar á orku- og veitukerfum landsins og miklar fjárfestingar. Hægt er að lesa meira um þingið og dagskrá þess hér. 

Til baka