Fara í efni

Fimmti Fiðringurinn á Norðurlandi

Maron Birnir í miðri þvögunni
@Hilmar Friðjónsson
Maron Birnir í miðri þvögunni
@Hilmar Friðjónsson

Fiðringur á Norðurlandi fór fram í fimmta sinn og er óhætt að segja að hann sé að festa sig í sessi betur og betur. Það er reyndar umhugsunarefni af hverju bara fjórir af sjö Akureyrarskólunum taki þátt í ár þar sem þeir eru flestir mjög fjölmennir en það er einlæg von okkar sem stöndum að verkefninu að þeir taki allir þátt að ári!

Kátt var í Hamraborg í Hofi þegar skólarnir níu stigu á svið með atriðin sín. Kynnarnir Níels Thibaud Girerd og Hólmfríður Hafliðadóttir leikarar fóru á kostum milli atriðanna og fóru hamförum í búningskiptum. Maron Birnir tryllti lýðinn í dómarahléinu og flutti Fiðringslagið Hvar ertu nú? ásamt fleiri lögum.

Sigurvegari í ár er Borgarhólsskóli með atriðið sitt Ég er ekki lygari og fjallar um það hvernig þolendum kynferðisofbeldis er oft ekki trúað. Í öðru sæti var Brekkuskóli með atriðið Saknaðarsöngur sem fjallar um að ef við pössum okkur ekki gæti tæknin tekið yfir farið að stjórna okkur mannfólkinu. Í þriðja sæti lenti Síðuskóli með atriðið Opnum dyrnar sem varpar ljósi á erfiðleika og fordóma í garð innflytjenda og hversu sárt og erfitt það getur verið að þurfa að yfirgefa heimili sín. Sérstök verðlaun fyrir skemmtilega, vandaða eða skapandi notkun á íslensku hlaut Grunnskóli Húnaþings vestra.

Dómnefnd átti úr vöndu að ráða og auðvitað eru allir þáttakendur sigurvegarar eins og þau nefndu, margir að fara langt út fyrir þægindarammann sinn, mættir á stóra sviðið í Hofi að dansa leika og syngja fyrir hátt á fjórða hundrað manns. Unglingarnir skinu skært og það var frábært að sjá ástríðuna og gleðina á sviðinu og baksviðs. Framtíðin er svo sannarlega björt!

SSNE og SSNV styrkja verkefnið ásamt MAK og verkefnastjórar eru María Pálsdóttir og Hera Jónsdóttir

 

Til baka