Fara í efni

Fiðringur auglýsir eftir tillögum að farandverðlaunagrip

Fiðringur er litli bróðir Skrekks og Skjálftans. Ljósmynd frá Skrekk
Fiðringur er litli bróðir Skrekks og Skjálftans. Ljósmynd frá Skrekk

Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum Akureyrar og nágrennis og verður haldin í fyrsta sinn þann 5. maí í Hofi en þá flytja nemendur frá átta grunnskólum sitt atriði.

 

Fiðringur er að fyrirmynd Skrekks sem haldinn hefur verið í Reykjavík í 30 ár og Skjálftans á Suðurlandi sem leit fyrst ljós í fyrra.

 

Nú auglýsum við eftir tillögum að farandverðlaunagrip sem fer heim í skóla sigurliðsins hvert ár. Áhugasamir listamenn á öllum aldri eru hvattir til að senda inn tillögu með greinagóðri lýsingu á gripnum ásamt skissum eða mynd á fidringur.nordurlandi@gmail.com fyrir 8. apríl næstkomandi

 

Vinningstillagan hlýtur 100.000 krónur auk efniskostnaðar.

 

Fylgist með Fiðringi á Facebook og Instagram

Til baka