Fara í efni

Farið að finna fyrir Fiðring í Hofi

Tíu Fiðringshópar mættu í Hof þriðjudagsmorguninn 3. mars og fengu að máta sviðið í Hamraborg, fara í leiki, hitta tæknimenn Hofs og kynna hvar þau standa með sín atriði. Skólarnir voru allt frá Hvammstanga til Húsavíkur. Mjólkursamsalan og Myllan sáu til þess að krakkarnir voru leystir út með kókómjólk og ostaslaufu! Fiðringur á Norðurlandi fer svo fram miðvikudaginn 6. maí kl 20 og miðasala hefst í apríl. María og Hera verkefnastjórar voru kátar með morguninn og var þetta besti Hof dagurinn hingað til en hann var nú haldinn í þriðja sinn.  Sjá myndaalbúm

Til baka