Fara í efni

Fantagóð frumsýning á Birtíng

Fullt hús var á frumsýningu Birtíngs í Samkomuhúsinu á Akureyri í gær og virtust gestir skemmta sér konunglega yfir kraftmikilli uppsetningu Bergs Þórs Ingólfssonar á þessu klassíska og sí-viðeigandi verki. Birtíngur er saga eftir Voltaire, sem oft er nefndur hinn kaldhæðni hugsuður upplýsingarinnar, hann fæddist árið 1694 og verk hans um Birtíng kom fyrst út árið 1759. Þó verkið sé orðið rúmlega tveggja alda gamalt þá á það jafn vel við í dag og þegar það kom út. Verkið fjallar fyrst og fremst um bjartsýni sem nauðsynlegt tangarhald í óréttlátum og ófullkomnum heimi. Birtíngur sjálfur er einfaldur maður sem verður yfir sig ástfanginn af hinni íðilfögru Kúnígúnd. Sú ást dregur þó dilk á eftir sér svo um munar og er hann gerður brottrækur úr kastala allra kastala eftir ástríka stund með sinni heitelskuðu. Við það hefst ferðalag Birtíngs um borgir Evrópu og Ameríku þar sem hann verður vitni af flestum þeim hörmungum sem heimurinn hefur upp á að bjóða. Með bjartsýnisfrasa kennarar síns, Altúngu að leiðarvopni um að sá heimur sem við búum í sé besti heimur allra heima, reynir Birtíngur að horfa á raunir sínar með þykkum bjartsýnisgleraugum og heldur ótrauður áfram ferðalagi sínu með það eina takmark að endurheimta ástkonu sína, „perlu allra kvenna“ Kúnígund.

Framsetning Voltaires á þeim hrylling sem fylgir stríði, sjúkdómum, hungri, trúarbrögðum og valdabaráttu er hinsvegar sett fram á mjög kómískan hátt og nær leikgerð Bergs að fanga þann heim og margfalda á sviðinu með hjálp frábærs leikhóps, einstaklega grípandi tónlistar, búninga á heimsmælikvarða og leikmyndar sem pakkar þessu öllu inn í þrælskemmtilegan söngleik.

Viðbrögð áhorfenda sýndu og sönnuðu að þetta verk á jafn vel við unga sem aldna. Bæði þau sem lesið höfðu verkið sem og þau sem upplifðu það án nokkurrar vitneskju um innihald höfðu einstaklega gaman af. Hilmar Friðjónsson tók myndir af gestum sem svo sannarlega nutu kvöldsins. sjá myndaalbúm

Leikstjórn og leikgerð: Bergur Þór Ingólfsson

Höfundur: Voltaire

Leikmynd: Sigríður Sunna Reynisdóttir

Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir

Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Ljós: Lárus Heiðar Sveinsson

Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson

Hár og förðun: Harpa Birgisdóttir

Leikarar: Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Níels Thibaud Girerd, Sólveig Guðmundsdóttir, Urður Bergsdóttir

Til baka