Fara í efni

Fallegu lögin hennar Helenu Eyjólfsdóttur í Hofi

Tónleikarnir Manstu ekki vinur? Fallegu lögin hennar Helenu Eyjólfsdóttur fara fram í Hamraborg í Hofi föstudagskvöldið klukkan 20:30. 

Helena Eyjólfsdóttir er ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar. Hún hefur staðið á sviðinu í marga áratugi og er fyrir löngu búin að syngja sig inn í hjörtu landsmanna með ógleymanlegum dægurlagaperlum. 

Flytjendur eru Hreindís Ylva, Hrafnhildur Ýr, Ívar Helgason, Sigurlaug Vordís, Kristjana Arngríms, Grímur Sigurðsson. Heiðursgestur verður engin önnur en sjálf Helena Eyjólfsdóttir. 

Tryggðu þér miða strax á mak.is. 

Til baka