Fara í efni

Eyrin Restaurant opnar í næstu viku

Nýr veitingaaðili hefur tekið við rekstri veitingastaðarins í Hofi.
Nýr veitingaaðili hefur tekið við rekstri veitingastaðarins í Hofi.

Nýi veitingastaðurinn í Hofi, Eyrin Restaurant, mun hefja rekstur miðvikudaginn 13. nóvember. 

Samkvæmt Guðmundi Ragnari Sverrissyni, matreiðslumanni og eiganda, mun Eyrin Restaurant leggja áherslu á létta rétti í smáréttastíl; rétti sem hægt er að deila yfir góðum drykkjum. Einnig verður boðið upp á bröns um helgar.

„Nafnið var valið með tilvísun í Eyrina á Akureyri og þar sem lögð verður áhersla á íslenska rétti þá vildum við hafa nafnið á íslensku,“ segir Guðmundur Ragnar. 

Til baka