Fara í efni

Eva Hrund ráðin í starf framkvæmdastjóra

Stjórn Menningarfélags Akureyrar hefur ráðið Evu Hrund Einarsdóttur í starf framkvæmdastjóra. Eva Hrund er menntaður viðskiptafræðingur með áherslu á fjármál og stjórnun og með MLM nám í forystu og stjórnun. Hún starfaði um tíu ára skeið sem fjármála- og starfsmannastjóri hjá Lostæti ehf og hefur setið í bæjarstjórn Akureyrar frá árinu 2014.

Alls sóttu 16 manns um starfið og var umsóknarferlinu stýrt af Mögnum Ráðningum. „Eva Hrund hefur góða þekkingu á bæði rekstri og mannauðsmálum sem mun sannarlega nýtast vel í spennandi og krefjandi starfi framkvæmdarstjóra,“ segir Brynhildur Pétursdóttir formaður stjórnar Menningarfélagsins.

Eva Hrund tekur við starfinu af Þuríður Helgu Kristjánsdóttur sem sagði starfi sínu lausu í janúar. Á sama tíma og stjórn Menningarfélagsins þakkar Þuríði Helgu fyrir farsælt samstarf og óskar henni velfarnaðar í nýjum ævintýrum býður stjórnin Evu Hrund innilega velkomna til starfa.

Menningarfélag Akureyrar rekur Leikfélag Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, og Menningarhúsið Hof.

Til baka