Fara í efni

Ert þú með reynslu af veitingarekstri? Leit að nýjum rekstraraðila kaffihúss- og veitingareksturs í Hofi

Menningarfélag Akureyrar leitar að nýjum rekstraraðila til að sjá um kaffihúsa- og veitingarekstur í Menningarhúsinu Hofi.

Menningarhúsið Hof er staðsett í miðbæ Akureyrar og er eitt af helstu kennileitum bæjarins. Í Hofi fer fram metnaðarfullt menningarstarf, þar er Menningarfélag Akureyrar með skrifstofur sínar og starfsemi ásamt Tónlistarskólanum á Akureyri, og hönnunarversluninni Kistu.

Í Hofi er glæsileg aðstaða fyrir tónleika, veislur, fundi og ráðstefnur. Þar er fullbúið eldhús og góð aðstaða til veitinga- og kaffihúsareksturs. Úr veitingarýminu er fallegt útsýni til suðurs yfir Pollinn.

Kröfur til rekstraraðila:

  • Bjóða upp á hágæða veitingaþjónustu til gesta Hofs.
  • Veitingaþjónusta á ráðstefnum, tónleikum,fundum og öðrum viðburðum sem fara fram í Hofi.
  • Samstarf við Menningarfélag Akureyrar vegna viðburða í Hofi.

Umsækjendur skulu hafa reynslu af veitingarekstri og hafa sjálfbærni og gæði í fyrirrúmi í sínum rekstri. Í umsókninni eiga að koma fram hugmyndir og framtíðarsýn umsækjenda á veitingarekstur í Hofi ásamt tilboði í leigu á aðstöðunni.

Upplýsingar veitir Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar thuridur@mak.is

Umsóknir sendist fyrir 1. febrúar á netfangið umsoknir@mak.is

Menningarfélag Akureyrar, Strandgötu 12, Akureyri, 450 1000

Til baka