Opið er fyrir umsóknir vegna A! Gjörningahátíðar
A! Gjörningahátíðin er fjögurra daga alþjóðleg hátíð sem haldin er árlega, A! er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Myndlistarfélagsins á Akureyri og Listnámsbrautar VMA.
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir fyrir hátíðina sem fer nú fram í tólfta sinn dagana 8.–11. október.
Á dagskránni eru fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af ýmsum toga. Þar koma fram bæði ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og þekktum gjörningalistamönnum, dans- og leikhúsfólki. Meðal þeirra sem hafa tekið þátt á undanförnum árum eru Sigurður Guðmundsson, Gjörningaklúbburinn, Dustin Harvey, Rúrí, Theatre Replacement, Katrín Gunnarsdóttir, Tricycle Trauma, Curver Thoroddsen, Brák Jónsdóttir, Tales Frey, Anna Richardsdóttir, Kuluk Helms, Harpa Arnardóttir, Snorri Ásmundsson, Florence Lam, Olya Kroytor og Dýrfinna Benita Basalan.
Á hverju ári breytir hátíðin Akureyri í suðupott spennandi gjörninga. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um með því að senda umsókn á netfangið a@listak.is fyrir 1. apríl. Verkefnisstjóri hátíðarinnar er Sara Bjarnason.