Fara í efni

Línumál Vikars opna í Hofi á laugardag

Myndlistarsýningin Línumál eftir Vikar Mar opnar í Hofi á laugardaginn 7. júní kl 14:00 - Öll velkomin!

Vikar Mar (f. 1999) er myndlistarmaður búsettur og starfandi á Hjalteyri við Eyjafjörð. Hann vinnur aðallega málverk þar sem efniskennd, endurtekning og táknmyndir mynda kjarnann í sjónrænni rannsókn hans.

Vikar notar aðallega akrílmálningu á striga, en hefur jafnframt þróað verk á fundna fleti og efni úr nærumhverfinu.

Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum víða um land. Vinnustofa hans á Hjalteyri hefur verið opin almenningi reglulega og gegnt hlutverki lifandi vettvangs fyrir verk í mótun og samtal við gesti.

Í sýningunni Línumál í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri heldur Vikar Mar áfram rannsókn sinni á eðli málverksins sem miðils merkingar, skynjunar og efnis. Á sýninguni dregur hann fram sjónrænt málkerfi sem byggir á síendurtekinni línulegri mótun. Línan er í þessu samhengi bæði formgerð og tákn, hreyfing og ummerki, sem vísa út fyrir hefðbundin mörk túlkunar.

Verkin sækja innblástur í hugmyndir um óskiljanlegt ritmál og hvernig sjónræn framsetning getur vakið tilfinningu fyrir merkingu án þess að sú merking sé skýr. Í stað aðferða sem byggja á táknrænum yfirfærslum eða frásagnarlegu ívafi þróar Vikar abstrakt málverk sem virkar fremur sem opnar kerfislegar framsetningar

– einskonar sjónræn málfræði þar sem lesandi stendur frammi fyrir formum sem virðast reglubundin en eru jafnframt lokuð túlkun.

Endurtekning gegnir lykilhlutverki í formgerð verkanna. Línur og strik raðast í mynstrakerfi sem kallast á við ritað mál eða skrift en án þess að lúta merkingarlegum reglum þess. Þessi aðferð staðsetur verkin í huglægum þversniði milli sjónrænnar skynjunar og lestrar, þar sem óvissan um uppruna og tilgang verður hluti af upplifuninni.

Yfirborð málverkanna ber með sér efnistengda hugsun – þar sem málningin, lagskiptingin og strokurnar mynda sjálfstætt frásagnarlag, án þess að vísa í utanaðkomandi heim. Hið sjónræna rými er ekki svið framsetningar heldur sjálfstæður vettvangur hugsunar, efnis og tíma.

Línumál býður áhorfandanum ekki skýr svör heldur virkjar hann sem þátttakanda í óljósu lesferli þar sem merking verður sífellt seigfljótandi og aðgengileg, aðeins í gegnum nærveru, íhugun og opna skynjun.

Öll eru velkomin á opnun og að þiggja veitingar frá Mói Bistro

Til baka