Fara í efni

Marta Nordal leikhússtjóri með kynningu fyrir afmælistónleika SN

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, verður með kynningu fyrir tónleikana á sunnudaginn þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fagnar 30 ár afmæli sínu. 
Marta ætlar að ræða um Beethoven, sinfóníuna og afmælisbarnið sjálft í veitingarýminu í Hofi.
Kynningin hefst klukkustund fyrir tónleikana. Öll velkomin.
Nú eru aðeins örfáir miðar eftir á afmælistónleikana þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fagnar 30 ára starfsafmæli sínu með glæsilegum tónleikum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 29. október 2023.
 

Óðurinn til gleðinnar
9. sinfónía Beethovens

Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann Bjarnason
Einsöngvarar:
Herdís Anna Jónasdóttir
Hildigunnur Einarsdóttir
Gunnar Björn Jónsson
Oddur Arnþór Jónsson

Ásamt Kór Akureyrarkirkju og Mótettukórnum.

Tryggðu þér miða á mak.is

Til baka