Fara í efni

Appelsínugult Hof í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi

Menningarhúsið Hof er í dag lýst upp í appelsínugulum lit í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi. 

Þann 25. nóvember var alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi á konum og 10. desember er hinn alþjóðlegi mannréttindadagur. Í dag, fimmtudaginn 1. desember kl. 16.30 fer fram ljósaganga í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls ofbeldis. Gengið verður frá Zontahúsinu, Aðalstræti 54, og að Bjarmahlíð, Aðalstræti 14, þar sem Bjarney Rún Haraldsdóttir, teymisstjóri Bjarmahlíðar, flytur stutt erindi.

Að göngunni standa Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbbur Akureyrar og Zontaklúbburinn Þórunn hyrna ásamt nemendafélögum Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri.

Allir eru hvattir til að mæta og ganga saman gegn ofbeldi.

Til baka