Fara í efni

Forsölutilboð á söngleikinn CHICAGO

Tryggðu þér miða á forsölutilboði!
Tryggðu þér miða á forsölutilboði!

Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn Chicago í janúar 2023 í Samkomuhúsinu. Miðasala er hafin! Ef þú kaupir miða á sérstöku  forsölutilboði færðu miðann á 7120 krónur. Fullt verð er 8900 krónur. Ekki missa af þessu frábæra tilboði á þennan heimsfræga söngleik. 

Söngleikurinn Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verðlauna. Chicago var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi. Hafa ófáar kvikmyndastjörnur tekið að sér aðalhlutverkin m.a. Pamela Anderson, Brooke Shields og Melanie Griffith. Samnefnd kvikmynd frá árinu 2002 með Catherina Zeta Jones, Rene Zellweger og Richard Gere í aðalhlutverkum sló einnig í gegn og vann til fjölda óskarsverðlauna m.a sem besta kvikmyndin.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi vinsæli og margverðlaunaði söngleikur er sýndur á Akureyri í atvinnuleikhúsi en Chicago hefur aðeins einu sinni áður verið fluttur á Íslandi en það var árið 2005 í Borgarleikhúsinu. 

Forsölutilboðið gildir til 15. október. 

Til baka