Fara í efni

Barnamenningarhátíð á sumardaginn fyrsta í Hofi

Bræðurnir munu troða upp í Hofi á sumardaginn fyrsta. Ekkert kostar inn á viðburði Barnamenningarhát…
Bræðurnir munu troða upp í Hofi á sumardaginn fyrsta. Ekkert kostar inn á viðburði Barnamenningarhátíðar.

Menningarhúsið Hof tekur virkan þátt í Barnamenningarhátíð á Akureyri með fjölbreyttum viðburðum á sumardaginn fyrsta.

Elstu börn leikskólans Hulduheima halda myndlistasýningu í Hofi. Sýningin er byggð á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og sýningin opnar kl. 15.

Á sama tíma verður alþjóðlegt partí í Hofi þegar krakkar frá ýmsum löndum kynna sig, sýna hver þau eru og hvað þeim finnst skemmtilegt. Partíið ÉG – fjölmenning á Akureyri stendur yfir í Hofi milli kl. 15-17.

Klukkan 17 er komið að stóru stundinni þegar bræðurnir Frikki Dór og Jón Jónsson stíga á svið Hamraborgar á Sumartónum Ungmennaráðs Akureyrar, Hofs og Akureyrarbæjar. Bræðurnir munu slá taktinn inn í sumarið og spila sín uppáhaldslög af sinni alkunnu snilld. Norðlenska sveitin Brenndu Bananarnir hita upp fyrir þá bræður. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana! Verið öll hjartanlega velkomin.

Markmið Barnamenningarhátíðar er að hvetja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í menningarstarfi og veita þeim tækifæri til að njóta listar og menningar.

Gleðilegt sumar!

Til baka