Fara í efni

Fullorðin tekin upp að nýju í haust

Grínsýningin Fullorðin, sem hefur gjörsamlega slegið í gegn í Hofi, verður tekin upp að nýju í haust! Miðasala er þegar hafin á www.mak.is.

Í millitíðinni er vert að benda á að leikararnir úr Fullorðin þau Árni Beinteinn, Birna Péturs og Vilhjálmur B. Bragason, taka að sér hverskonar skemmtanir, grín, tónlistarflutning og veislustjórn í allt sumar. Hver vill ekki hitta Sveinbjörgu, Súsönnu eða Fullorðna manninn á meðan beðið er eftir sýningum haustsins?

Áhugasömum er bent á að senda fyrirspurn á fullordin2021@gmail.com.

Til baka