Fara í efni

Starf leikhússtjóra laust til umsóknar

Menningarfélag Akureyrar auglýsir eftir leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar. Leikfélag Akureyrar er leiklistarsvið Menningarfélags Akureyrar og eitt af þremur kjarnasviðum þess. Leikhússtjóri vinnur náið með öðrum sviðsstjórum MAk og framkvæmdastjóra, auk þess að sitja reglulega fundi með þeim og stjórn MAk. Viðkomandi kemur til með að vinna með hæfileikaríku fólki alls staðar að af landinu og verða hluti af framtíð félags sem á sér djúpar rætur í hefð og sögu leiklistar á Íslandi.

Til að sækja um þarf að senda ítarlega ferilskrá og umsóknarbréf þar sem rakin er hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2018. Umsóknir skulu sendar á netfangið umsoknir@mak.is. Umsjón með ráðningunni hefur framkvæmdastjóri, Þuríður Helga Kristjánsdóttir, ásamt stjórn MAk.

Til baka