Fara í efni

Ellefu ný tónverk frumflutt á vel heppnuðum tónleikum

Velheppnaðir tónleikar Upptaktsins, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna, fóru fram í Menningarhúsinu Hofi í gær, sunnudaginn 24. apríl. Þar voru ellefu verk 13 ungra tónskálda á aldrinum 11-15 ára frá Akureyri, Eyjafjarðarsveit og Hrísey flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum. Verkin ellefu voru valin úr innsendum tónlistarhugmyndum, en börn í 5. -10. bekk í skólum á Norðurlandi eystra gátu tekið þátt í verkefninu. Verkin í ár voru afar fjölbreytt, en þar mátti heyra nýklassísk verk, popp-,rokk-, söngleikja-, jazz- og tölvuleikjalag. Lokapunktur Upptaktsins er svo þegar lögin ellefu verða gefin út á Youtube.

 

Kristín Sóley Björnsdóttir, verkefnastjóri Upptaktins og viðburðastjóri Menningarhússins Hofs segir tónleikana hafa tekist afar vel.

„Þetta var sannkölluð uppskeruhátíð eftir sköpunarvinnu ungu tónskáldanna, útsetjara, tónlistarstjóra og hljóðfæraleikara. Það er ekki á hverjum degi sem ellefu ný tónverk eru samin af ungu fólki, útsett af fagfólki og flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum við bestu aðstæður. Við erum svo stolt af þessum ungu hæfaleikaríku krökkum, þau eru sannarlega kröftug fræ sem munu með áframhaldandi vökvun blómstra í samfélaginu okkar. Þvílíkt ríkidæmi – framtíðin er sannarlega þeirra og ég efast ekki um að við fáum að njóta blómanna sem út spretta á komandi árum með þeim og enn fleiri þátttakendum í Upptaktinum,“ segir Kristín Sóley. 

 

Um útsetningu verkanna fyrir hljómsveit sáu þau Kristján Edelstein og Greta Salóme, en Greta er einnig tónlistarstjóri Upptaktsins.

 

Ungu tónskáldin og verk þeirra:

 

Amanda Eir Steinþórsdóttir

Two sided love story

 

Eiður Reykjalín Hjelm

Naughty elves

 

Gísli Erik Jónsson

Hrafn

 

Gísli Freyr Sigurðsson

Out of my life

 

Haukur Skúli Óttarsson og Ragnheiður Birta Hákonardóttir

Spunaslóð

 

Heimir Sigurpáll Árnason

Láttu ætíð ljós frá þér

 

Helga Björg Kjartansdóttir

Random hljómar í herberginu mínu

 

Jóhann Valur Björnsson

Adamant

 

Poets, bullets and society: Amanda Eir Steinþórsdóttir, Mahaut Ingiríður Matharel og Sólrún Alda Þorbergsdóttir

Katherine

Óðinn Thomas Atlason

Continuum

 

Torfhildur Elva F. Tryggvadóttir

Vordans

 

Hljómsveitina skipuðu:

Ásdís Arnardóttir - selló

Emil Þorri Emilsson – slagverk

Greta Salóme – fiðla og söngur

Ívar Helgason - söngur

Jón Þorsteinn Reynisson - harmonikka

Kristján Edelstein – gítar

Petrea Óskarsdóttir - þverflauta

Risto Laur – flygill

Tómas Leó Halldórsson - bassi

Vilhjálmur Ingi Sigurðsson – trompet

 

Upptökustjóri: Haukur Pálmason

Hljóðmenn: Árni F. Sigurðsson og Bernharð Sveinsson

Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE.

Til baka