Fara í efni

Ellefu glæný tónverk eftir börn og ungmenni frumflutt í Hofi

Afar velheppnaðir tónleikar Upptaktsins á Norðurlandi eystra, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna, fóru fram í gær, sunnudag, í Menningarhúsinu Hofi.

Þar fluttu atvinnuhljóðfæraleikarar ellefu glæný tónverk eftir ungmenni á aldrinum 10-16 ára. Á tónleikunum fengu tónlistarstefnur að njóta sín, og áheyrendur fengu að heyra allt frá reggí yfir í háklassískan menúett. Þar má nefna rokk, popp, jazz, tölvuleikjatónlist og tónlist sem myndi sóma sér vel í hvaða kvikmynd sem er.

Það voru hátt í 100 manns sem fögnuðu ungu tónskáldunum tíu með glimrandi lófataki í lok tónleikanna.

„Meðan bylur réði ríkjum utanhúss bræddi sköpunargleðin og hlýjan í verkum ungmennannna tíu hjörtu þeirra sem á hlýddu og víða sá ég tár glitra á hvarmi,“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarhússins Hofs og verkefnisstýra Upptaktsins.

„Við erum ríkt samfélag að eiga svo hæfileikarík og skapandi ungmenni í tónlist! Ég er líka afar stolt af því að Menningarfélag Akureyrar hafi skapað vettvang til að ýta undir sköpunarkraft ungmenna sem hafa áhuga á tónlist og ég bið þau einlæglega að halda áfram að semja og hvet þau sem langar til að prófa að semja verk að kýla á það. Allt getur gerst. Ég hlakka mikið til að sjá nýjar hugmyndir kvikna og streyma inn að ári í Upptaktinn 2025!“ segir Kristín Sóley jafnframt.

Útsetning verkanna var í höndum Kristjáns Edelsteins og Gretu Salóme, sem einnig var tónlistarstjóri Upptaktsins.

 

Ungtónskáldin og verk þeirra :

Anna Lovísa Arnarsdóttir

Eyrun mín sjá liti

Eiður Reykjalín Hjelm

Frühlig im Wald (vor í skóginum).

Hákon Geir Snorrason

Svigrúm

Heimir Bjarni Steinþórsson

Metal Dandelion

Jóhann Valur Björnsson

Unfathomable

Jóhann Valur Björnsson

Blossom

Jóhanna Kristín Júliusdóttir

Fjölskyldur

Svanborg Alma Ívarsdóttir

Draumur túnfisksins

Þórhallur Darri

Show me your heart

Þórhildur Eva Helgadóttir

Froskadansinn

Tobías Þórarinn Matharel

Trompetlag

Tónleikarnir voru teknir upp bæði í hljóð og mynd til skrásetningar og fyrir ungmennin til eignar.

Lög þeirra munu birtast á vef RÚV innan skamms og verða í kjölfarið einnig aðgengileg á Youtuberás Upptaktsins á Norðurlandi eystra.

Upptakturinn í Hofi er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu og er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.

Til baka