Fara í efni

Sea Sick hefur slegið í gegn víðsvegar um heiminn

Sunnudaginn 16. október veitist Norðlendingum einstakt tækifæri til að sjá heimsþekkta verkið Sea Sick í Samkomuhúsinu!

Sea Sick fjallar um hlýnun sjávar og er skrifað og flutt af kanadíska verðlaunablaðamanninum Alanna Mitchell.

Sýningin er byggð á samnefndri metsölubók Mitchell en bæði bókin og verkið hafa farið sigurför um heiminn og fengið frábæra gagnrýni. Verkið er einnig sýnt í Hörpu á ráðstefnunni Artic Circle. 

Það er kanadíska sendiráðið sem kemur með verkið til Íslands. Verkið er flutt á ensku. Eftir sýninguna býður Alanna Mitchell upp á stuttar umræður.

„The ocean contains the switch of life. Not land, not the atmosphere. The ocean. And that switch can be turned off.“

Sea Sick er leikstýrt af Franco Boni og Ravi Jain og framleitt af The Theatre Centre.

Nánari upplýsingar um verkið og höfundinn:

https://alannamitchell.com/sea-sick-2/

https://theatrecentre.org/event/sea-sick/

Aðeins ein sýning, sunnudaginn 16. október kl. 20. Miðasala á mak.is. 

Til baka