Djassveisla Eikar í Svarta kassanum
Það er komið að fimmtu tónleikunum af þeim átta viðburðum sem hlutu styrk frá VERÐANDI listsjóð starfsárið 2025-2026, það er Eik Haraldsdóttir sem býður til djassveislu í Svarta kassanum í Hofi fimmtudaginn 19. mars kl 20.
Tónleikar Eikar, Kvöldroðinn – Ný íslensk djasslög, samanstanda af tíu laga prógrammi, sem hún samdi fyrir útskriftartónleika sína frá Listaháskóla Íslands. Þar verður fjallað um ástina, óvissuna og hversu óhjákvæmilegt það er að vita ekki neitt.
Hljómsveitina skipa auk Eikar:
Ludvig Kári Forberg á píanó og víbrafón
Alexander Grybos á gítar
Hlynur Sævarsson á bassa
Andri Eyfjörð á trommur
Guðjón Steinn Skúlason á sópran og tenór saxófónn
Micheal Weaver á alto saxófónn
Tobias Þórarinn Matharel á trompet
Lára Rún Keel Kristjánsdóttir á trompet og Einar Bjarni Ramos Björnsson á básúnu
Tryggið ykkur miða á mak.is
Næstu viðburðir styrkþega VERÐANDI eru Devi, indverskur dans til heiðurs gyðjunni þann 31. maí með þeim Évu og Ashimu, dansverkið Malinche eftir Yuliönu Palacios þann 12. júni og tónleikar Helgu Margrétar Clarke, Raddir kvenna og kvára, þann 19. júní.