Fara í efni

Djákninn snýr aftur

LEIKSKRÁ

 

Vegna mikilla vinsælda snýr hin sprenghlægilega og farsakennda meðhöndlun á þekktustu draugasögu Íslandssögunnar aftur í Samkomuhúsið um helgina.

Djákninn á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð sló rækilega í gegn á síðasta leikári en um samvinnu Leikhópsins Miðnætti við Leikfélag Akureyrar er að ræða.

Leikarar eru Jóhann Axel Ingólfsson og Birna Pétursdóttir sem draga fram hverja persónuna á fætur annarri, lesa á milli línanna og skálda í eyðurnar. „Djákninn er genginn aftur! Sýningin var sýnd fyrir fullu húsi í maí síðastliðtinn og færri komust að en vildu,“ segir Agnes Wild, leikstjóri sýningarinnar.

Djákninn á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð er hryllilegt gamanverk fyrir alla fjölskylduna sem fær áhorfendur til að veltast um af hlátri. Aðeins þessi eina sýningarhelgi.

Miðasala á www.mak.is 

Til baka