Fara í efni

Djákninn á Myrká í norrænu samstarfi

Nú stendur yfir á Akureyri norrænt vinabæjarmót þar sem ungt fólk frá Ålesundi í Noregi, Randers í Danmörku, Lahti í Finnlandi og Västerås í Svíþjóð mætast ásamt heimafólki. Mótið er haldið á Akureyri á fimm ára fresti og að þessu sinni tekur hópur ungmenna frá pólsku borginni Jelenía Góra einnig þátt í því vegna samstarfs við Akureyrarbæ á þessu ári og því næsta á nokkrum sviðum.

Unga fólkið vinnur saman í fimm daga að spennandi verkefnum í nokkrum vinnusmiðjum sem endar svo með sameiginlegri  sýningu í Hofi á morgun föstudag kl. 17.00. Söguþráðurinn er þjóðsagan um Djáknann frá Myrká og verður spennandi að sjá hvernig unga fólkið vinnur úr þessari frægu draugasögu með sínum hætti. Aðgangur að sýningunni er öllum opinn og án endurgjalds.

Samhliða móti ungmennanna er haldið styttra mót stjórnmálafólks og starfsmanna sveitarfélaganna en dagskráin er að stórum hluta sameiginleg dagskrá krakkanna. Jafnframt eru í bænum fulltrúar Norræna félagsins frá öllum vinabæjunum. Heildarfjöldi þátttakenda er um 130 manns. Vinabæjarmótinu lýkur svo á morgun, föstudag.

Markmiðið með mótinu er m.a. að halda á lofti norrænu samstarfi og gildi þess, mynda tengsl milli ungmenna í öllum löndunum og miðla þekkingu og reynslu jafnt meðal unga fólksins sem og stjórmálafólks og starfsmanna.

 

Fréttin birtist fyrst á vef Akureyrarbæjar.

Til baka