Fara í efni

Danssýning Steps í Hofi á laugardaginn

STEPS Dancecenter verður með sýningu í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 13. maí.  

Til er heill heimur af sjónvarpsþáttum og margir eiga sína uppáhaldsþætti. Sumir horfa jafnvel á heilu sjónvarpsseríurnar aftur og aftur, margir rifja oft upp gamla þætti sem þeir horfðu á sem minningu og aðrir rifja upp jafnvel brot úr þáttum sem margir tengja við. Dansskólinn Steps Dancecenter ætlar að halda mikla dansveislu þar sem þættir á borð við Game of Thrones, Sherlock Holmes, Sex & the City, Hvolpasveitin, Prúðuleikararnir, High School Musical, Stranger Things, Wednesday, Flinstones, The Brady Family og Mr. Bean koma við sögu.

Dansnemendur frá 2ja ára og uppúr stíga á sviðið í Hofi 13. maí. Sýningin er opin öllum. Miðasala á mak.is. 

Til baka