Fara í efni

Dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi

Hin árlega dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi – Milljarður rís fer fram í Hömrum í Hofi þann 14. febrúar. Milljarður rís er viðburður sem haldinn er víða um heim þar sem rúmur milljarður fólks dansar fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Vélarnar Ari þeytir skífum í Hofi á meðan við dönsum af dúndrandi samstöðukrafti.
Ein af hverjum þremur konum í heiminum er beitt kynbundnu ofbeldi - þar er Ísland engin untantekning. Annan hvern dag leitar kona á landsspítalann vegna heimilisofbeldis samkvæmt rannsókn sem gerð var í fyrra. Með því að mæta og dansa með heimsbyggðinni gefur þú ofbeldi fingurinn í eitt skipti fyrir öll.
Munið myllumerkið #milljarðurrís

Til baka