Fara í efni

Bjarni Frímann stjórnar Bach og Alfred Schnittke á páskatónleikum SN

Páskatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Skírdag. 6. apríl í Hofi

Brandenborgarkonsert Bachs nr 5 og kórverk hans um þrautagöngu og leyndardóma handan grafar og dauða mæta sturlaðri og sundurskotinni skrumskælingu á einleikskonsert barrokktímans.

Undir stjórn hljómsveitarstjórans Bjarna Frímanns Bjarnasonar flytur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt kammerkórnum Hymnodia og einleikurum nokkur af fegurstu verkum Bachs og hinn stórmerkilega og kostulega Concerto Grosso eftir Alfred Schnittke. Einleikarar eru Greta Salóme Stefánsdóttir, Petrea Óskarsdóttir, Bjarni Frímann Bjarnason, Pétur Björnsson og Guðbjartur Hákonarson.

 

Til baka