Fara í efni

Birna hlýtur tilnefningu til Grímunnar

Söngleikurinn Benedikt búálfur hlýtur tilnefningu til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna en tilnefningarnar voru opinberaðar í gær. Birna Pétursdóttir hlýtur tilnefningu í flokknum Leikkona ársins 2021 í aukahlutverki en Birna leikur Daða dreka eftirminnilega í söngleiknum.  

Gríman er með óvenjulegu sniði í ár vegna heimsfaraldursins. Til að mynda færast sviðslistaverkið Tæring og grínleikurinn Fullorðin báðar yfir á næsta verðlaunaár. 

Gríman verður afhent á morgun, fimmtudag í Tjarnarbíói og verður einnig í beinni útsendingu á Rúv. 

 

Til baka