Fara í efni

Benedikt búálfur tilnefndur til Eddu og Sögur – verðlaunahátíð barnanna

Benedikt búálfur er tilnefndur til Eddu-verðlauna sem Sjónvarpsefni ársins 2021! Ef þú vilt kjósa þitt uppáhaldssjónvarpsefni geturðu farið inn á þessa slóð.

Söngleikurinn fékk einnig tilnefningu á Sögur - Verðlaunahátíð barnanna í flokknum Barna- og ungmenna sjónvarpsefni ársins. 

Leikfélag Akureyrar frumsýndi söngleikinn í mars 2021. Hann hefur verið í sýningum í Sjónarpi Símans Premium síðan sýningum lauk í Sammkomuhúsinu. 

Fjölskyldusöngleikurinn er eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson og tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Það voru Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sem stóðu að uppsetningunni.

Með hlutverk Benedikts búálfs fer Árni Beinteinn Árnason, Dídí mannabarn er leikin af Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur en Daða dreka leikur Birna Pétursdóttir. Valgerður Guðnadóttir leikur drottninguna, Björgvin Franz leikur konunginn, Kristinn Óli Haraldsson (Króli) leikur Tóta tannálf og Hjalti Rúnar Jónsson leikur Sölvar súra og Jósafat mannahrellir. Leikstjóri er Vala Fannell.

Til baka