Fara í efni

Barr Kaffihús opnar í Hofi

Mynd: Sunna Ben
Mynd: Sunna Ben

Barr kaffihús er nýtt kaffihús í Menningarhúsinu Hofi. Veitingastjóri Barr er Silja Björk Björnsdóttir. Silja segir nafnið sótt í þéttvaxna og hrjóstuga barrskóga landsins. „Meiningin að koma með græna náttúruna inn í menningarhúsið. Á Barr verður lögð áhersla á gott, gæðakaffi frá Te & Kaffi, klassíska drykki í bland við nýjungar, kaffikokteila og auðvitað vandaða þjónustu við gesti. Boðið verður upp á súrdeigsbrauð frá Böggvisbrauði, dýrindis kökur og sætindi úr héraði, súpur og samlokur frá Múlabergi og gómsæt náttúruvín frá Berjamó,“ segir Silja Björk.

 

Barr Kaffihús opnar fyrstu vikuna í júní.

„Til okkar eru allir velkomnir. Það verður hægt að sitja úti við fjörðinn í góðri gæðastund með könnu af svalandi Pimm's eða norðlenskum craft bjórum. Við ætlum að bjóða upp á allskonar skemmtilega kaffidrykki sem sækja innblástur í kaffimenningu framandi landa og einnig verða allskonar skemmtilegir pop-up viðburðir á kaffihúsinu, bæði menningarviðburðir og matarupplifanir í bland,“ segir Silja Björk.

 

Silja Björk hefur búið síðustu átta árin í Reykjavík en er fædd og uppalin á Akureyri. „Ég hef unnið í þjónustu- og veitingageiranum nánast alla mína starfsævi, komið að rekstri kaffihúsa Te & Kaffi og veitingastaða víða í borginni. Ég er mjög spennt að vera komin aftur heim til Akureyrar og njóta mín í faðmi Eyjafjarðarins og fjölskyldunnar og ekki skemmir fyrir að vera komin í flottan mannauð Menningarfélagsins. Það eru spennandi tímar framundan og sumarið verður bjart og skemmtilegt hjá okkur á kaffihúsinu, gott kaffi í sólinni með fallegasta útsýni bæjarins.“

Til baka