Fara í efni

Bangsímon, kanínur, hundar, fuglar og býflugur á fjölskyldutónleikum á sunnudaginn

Fjölskyldutónleikarnir Karnival dýranna fara fram í Hofi á sunnudaginn kl. 13. 
 

Bangsímon, kanínur, hundar, fuglar og býflugur. Tvö lítil tónlistarævintýri sem eru sett saman og túlkuð af flautukór nemenda úr Tónlistarskólanum á Akureyri og í Kópavogi.

Klassísk tónlist og jazz mynda hljóðheim skemmtilegrar sögu sem dregur alla með sér inn í ævintýraheim með aðstoð Hildar Gauju Svavarsdóttur sögumanns.

Öll flautufjölskyldan fær að hljóma, frá kontrabassaflautu upp í pikkóló flautu.

Enginn aðgangseyrir.

Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Til baka