Fara í efni

Bandarísk kórtónlist í Hofi á laugardaginn

Á tónleikunum verða flutt lög eftir lagahöfunda á borð við Paul Simon og Billy Joel.
Á tónleikunum verða flutt lög eftir lagahöfunda á borð við Paul Simon og Billy Joel.

Kammerkór Norðurlands flytur bandaríska kórtónlist í Hofi laugardaginn 25. mars. 

Flutt verða nokkur af glæsilegustu nýrri kórverkum höfuðtónskálda Bandaríkjanna. Einnig eru á efnisskránni þjóðlög, trúarleg lög og þekkt popplög í nýjum og afar metnaðarfullum útsetningum. Meðal lagahöfunda má nefna Paul Simon, Eric Whitacre, Jake Runestad, Billy Joel, Ola Gjeilo, Réne Clausen og Morten Lauridsen.

Stjórnandi Kammerkórs Norðurlands er sem fyrr Guðmundur Óli Gunnarsson en kórfélagar eru flestir tónlistarmenntaðir og/eða atvinnufólk í tónlist og koma víða að af Norðurlandi. 

Miðasala á mak.is

Til baka